Velkomin á síðuna mína!!
Leirdals Elju Yrja


Um mig:
Ég heiti Sparta og ég er Siberian husky tík.
Ég er úr fyrsta husky gotinu hjá Leirdals ræktun.
Ég fæddist 9 júlí 2009 ásamt systur minni og 4 bræðrum.
Þau heita Siska, Jaki, Kraftur, Huginn og Demon.
Mamma mín heitir Múla-Ynja og hún kemur úr Múla ræktun sem er á Egilstöðum og pabbi minn heitir Bedarra Scipio Africanus (Frosti).
Hann er innfluttur frá Svíþjóð frá Bedarra kennel.

"Mamma" mín heitir Alexandra Björg og við búum saman í Mosfellsbæ. Henni hefur alltaf langað í hund, og lét loksins verða að því núna í september og fékk hún mig :D Hún er alveg alsæl með mig =)




Annað:
Stjörnumerkið hennar Spörtu
Krabbi 22.júni- 23.júlí

Krabbahundar sýnast oft geðvondir og eins og á varðbergi. En undir niðri eru þeir bæði viðkvæmir og fullir hlýju.
Þeir leggja mikið upp úr því að eiga gott heimili og eru því góðir til undaneldis, sama hvort um tík eða hund er að ræða. Þegar krabbahundurinn hefur náð hvort heldur sem er bolta, beini eða frisbí-diski myndi hann frekar missa löppina en sleppa því sem hann hefur náð að setja tennurnar í.
Hann er því varasamur andstæðingur.

Eignarhaldsreglur hunda:
1. Ef mér líkar það, á ég það.
2. Ef ég var með það í munninum, á ég það.
3. Ef ég næ því frá þér, á ég það.
4. Ef ég var með það rétt áðan, á ég það.
5. Ef ég sá það fyrst, á ég það.
6. Ef ég þefa eitthvað upp, á ég það.
7. Ef það virðist vera mitt, á ég það.
8. Ef eitthvað brotnar, átt þú það.

Bæn hundsins:
Ég lifi varla lengur en 15 ár. Mér líður illa án þín. Hugleiddu það áður en þú tekur mig að þér.
Gefðu mér tíma og svigrúm til að skilja til hvers þú ætlast af mér.
Hrós þitt og umbun er sem sólargeisli, refsing er þungur dómur.
Reiðstu ekki sakleysi mínu, ég vil þér vel.
Þú átt þína atvinnu, þínar ánægjustundir og þína vini.
Ég á aðeins þig. Talaðu við mig. Enda þótt ég skilji ekki mál þitt, þá skil ég tón raddar þinnar.
Augu mín og látbragð eru mín orð.
Áður en þú slærð mig, bið ég þig að muna, að með beittum tönnum get ég kramið hönd þína, en ég mun aldrei beita þig ofbeldi.
Ef þér finnst ég leiðinlegur, vegna annríkis þíns, mundu þá að stundum líður mér illa og verð pirraður t.d. í sólarhita. Annastu mig þegar ég verð gamall. Án þín er ég hjálparvana. Deildu með mér gleði þinni og sorgum.
Veittu mér hlutdeild í lífi þínu, því ég elska þig.
Þú ert gestur nr. 382